Íslendingarnir áfram í þriðju umferð

Bjarki Már Elísson (til hægri) skoraði tvö mörk í dag.
Bjarki Már Elísson (til hægri) skoraði tvö mörk í dag.

Þýska handknattleiksliðið Füchse Berlin sigraði Chambery Savoie Handball 24:22 í 2. umferð EHF-bikarsins í dag en þýska liðið vann samanlagt 49:44 í tveimur leikjum. Bjarki Már Elísson gerði tvö mörk.

Erlingur Richardsson þjálfar lið Füchse Berlin sem vann fyrri leikinn 25:22 en það var hart barist í kvöld eins og í fyrri leiknum.

Staðan í hálfleik var 14:14 en þýska liðið náði að taka völdin á leiknum og sigraði að lokum 24:22.

Bjarki Már Elísson gerði tvö mörk fyrir Berlínarliðið en það er nú komið áfram í þriðju umferð EHF-bikarsins, sem er síðasta umferðin fyrir riðlakeppnina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert