Aron með tilboð frá Kiel

Aron Pálmarsson.
Aron Pálmarsson. AFP

Aron Pálmarsson, leikmaður ungverska meistaraliðsins Veszprém, staðfestir í samtali við þýska blaðið Kieler Nachrichten að hann sé með tilboð í höndum frá þýska liðinu Kiel sem hann lék með áður enn hann gekk í raðir Veszprém.

„Það er tilboð og það gerir mig stoltan. Hvernig Alfreð talar um mig gerir mig mjög stoltan. Kiel er besta félag í heimi og að það hafi áhuga á mér er alveg ótrúlegt,“ segir Aron í viðtali við blaðið.

Aron er á sínu öðru tímabili með Veszprém og er samningsbundinn félaginu til ársins 2018. Blaðið hefur heimildir fyrir því að franska meistaraliðið Paris SG hafi einnig áhuga á að fá Aron í sínar raðir.

„Það er önnur félög sem eru áhugasöm en ég reyni bara að einbeita mér að fullum krafti að Veszprém. Ég kom til Kiel þegar þegar var 19 ára gamall og ég verð allaf mikill stuðningsmaður félagsins. Ég hef tíma til að skoða mín mál og kanna alla möguleika. Ef félög vilja kaupa upp samning minn þá er ég tilbúinn,“ segir Aron.

Aron varð fjórum sinnum þýskur meistari með Kiel og varð tvívegis Evrópumeistari með liðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert