Atli Ævar og félagar með fullt hús

Atli Ævar Ingólfsson skoraði 5 mörk.
Atli Ævar Ingólfsson skoraði 5 mörk. mbl.s/Ómar

Atli Ævar Ingólfsson og félagar hans í Sävehof héldu sigurgöngu sinni áfram í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.

Sävehof vann stórsigur á Rioch, 36:22, þar sem Atli Ævar skoraði 5 mörk fyrir sína menn en Magnús Óli Magnússon skoraði 2 mörk fyrir Rioch. Sävehof hefur unnið alla fimm leiki sína í deildinni.

Íslendingaliðið Kristianstad sem á titil að verja vann Karlskrona á útivelli, 24:22. Ólafur Guðmundsson skoraði 4 mörk fyrir Kristianstad og þeir Gunnar Steinn Jónsson og Arnar Freyr Arnarsson skoruðu 2 mörk hvor.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert