Fram vann öruggan 33:23 sigur á Gróttu í Olís-deild kvenna í handbolta í kvöld. Staðan var 19:10 í hálfleik og var ljóst að Framarar, sem höfðu tapað síðustu tveim leikjum sínum á undan, ætluðu að selja sig dýrt í kvöld.
Með sigrinum jafnaði Fram Stjörnuna á toppi deildarinnar og eru bæði lið með 27 stig.
Ragnheiður Júlíusdóttir skoraði níu mörk fyrir Fram og Anna Úrsúla Guðmundsdóttir sex fyrir Gróttu.
Markaskorarar Fram: Ragnheiður Júlíusdóttir 9, Marthe Sördal 6, Hildur Þorgeirsdóttir 6, Sigubjörg Jóhannsdóttir 4, Hafdís Shizuka Iura 3, Steinunn Björnsdóttir 3, Arna Þyri Ólafsdóttir 2
Markaskorarar Gróttu: Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 6, Laufey Ásta Guðmundsdóttir 4, Sunna María Einarsdóttir 4, Lovísa Thompson 4, Þórey Anna Ásgeirsdóttir 3, Emma Havin Sardardóttir 1, Unnur Ómarsdóttir 1