Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði fimm mörk fyrir sænska liðið Kristianstad sem tapaði 26:23 fyrir króatíska liðinu Zagreb í B-riðli Meistaradeildar Evrópu í handbolta karla í kvöld. Arnar Freyr Arnarsson skoraði þrjú mörk fyrir Kristianstad og það gerði líka Gunnar Steinn Jónsson.
Kristianstad situr á botni B-riðils keppninnar með sex stig, en Zagreb skaust upp fyrir Kristianstad með sigri sínum í kvöld.