Bikarmeistarar Vals mæta serbneska liðinu Sloga Pozega í átta liðum í Áskorendakeppni Evrópu í handknattleik en dregið var til þeirra nú rétt í þessu.
Fyrri leikurinn fer fram á heimavelli Sloga Pozega 25. eða 26. mars og síðari leikurinn fer fram í Valshöllinni 1. eða 2. apríl. Sloga Pozega, sem er í sjötta sæti í serbnesku deildinni, sló út búlgarska liðið Lokomotiv Varna í 16-liða úrslitunum, samanlagt, 58:44, en báðir leikir voru spilaðir á heimavelli Sloga Pozega.
Sigurliðið í þessu einvígi mætir annað hvort Potaissa Turda frá Rúmeníu eða Dudelange frá Luxemborg.