Århus hafði betur gegn Midtjylland, 26:21, í dönsku A-deildinni í handknattleik í dag. Róbert Gunnarsson skoraði fimm mörk fyrir Århus og Ómar Ingi Magnússon og Sigvaldi Guðjónsson voru með þrjú.
Århus er á toppi deildarinnar með 39 stig en Holstebro er í 2. sæti með 35 stig.