Króatíski handknattleiksmaðurinn Josip Grgic, stórskytta Valsmanna, hefur verið úrskurðaður í eins leiks bann af aganefnd HSÍ.
Grgic hlaut útilokun með skýrslu fyrir brot í leiki Vals og Hauka í Olís-deildinni í síðustu viku og þarf að gjalda fyrir það með eins leiks banni. Hann missir af útileik Vals gegn Selfossi í næstu viku.