Fram og Afturelding gerðu 32:32 jafntefli í Olís-deild karla í handbolta í kvöld, í æsispennandi leik.
Fram er með 21 stig í 8. sæti deildarinnar fyrir lokaumferðina og getur endað hvar sem er frá sjötta til níunda sætis. Afturelding er með 30 stig og endar í 4. sæti deildarinnar.
Sóknarleikurinn réð ríkjum í fyrri hálfleik og enduðu töluvert fleiri sóknir með marki en ekki. Munurinn varð aldrei meiri en tvö mörk, sem var forskot sem bæði lið höfðu í hálfleiknum. Afturelding var skrefinu á undan fyrri part hálfleiksins, en Framarar seinni part hálfleiksins.
Staðan í hálfleik var 17:16 og var ljóst að báðir þjálfarar þyrftu að skerpa á varnarleiknum og markvörðum. Sama saga var í seinni hálfleik. Lítið var um markvörslur og varnarleik í hröðum og skemmtilegum leik.
Framarar voru skrefinu á undan frá byrjun í seinni hálfleik og var staðan 27:22, þeim í vil þegar korter var eftir. Leikmenn Aftureldingar gáfust ekki upp og var munurinn aðeins tvö mörk þegar átta mínútur voru til leiksloka, 30:28.
Eftir það varð leikurinn ansi spennandi. Framarar héldu forskotinu, þangað til tíu sekúndur voru til leiksloka. Þá skoraði Ernir Hrafn Arnarson, eftir að Bjartur Guðmundsson fékk að líta rautt spjald fyrir að tefja leikinn. Samkvæmt reglunum á að dæma víti á slíkt og skoraði Ernir af öryggi úr vítinu.