Handknattleiksmaðurinn Róbert Sigurðsson hefur skrifað undir eins árs lánssamning við ÍBV og mun hann leika með liðinu á næstu leiktíð. Róbert kemur til Eyja frá Akureyri þar sem hann hefur leikið allan sinn feril.
Róbert er stór og stæðilegur varnarmaður og ákvað hann að færa sig um set þar sem Akureyri féll úr úrvalsdeildinni á nýliðinni leiktíð.