Theodór Sigurbjörnsson og Steinunn Björnsdóttir úr Fram voru valin bestu leikmenn Olís-deildar karla og kvenna í handknattleik á nýliðinni leiktíð á lokahófi Handknattleikssambands Íslands sem stendur yfir í Gullhömrum í Grafarholti.
Annar Eyjamaður, Sandra Erlingsdóttir, og annar Framari, Viktor Gísli Hallgrímsson markvörður, voru valin efnilegustu leikmenn deildanna.
Theodór fór á kostum með ÍBV á keppnistímabilinu og var m.a. langmarkahæsti leikmaður deildarinnar með 233 mörk í 26 leikjum. Hann er eini leikmaður deildarinnar sem skoraði meira en 200 mörk. Steinunn var lykilmaður í liði Fram sem varð Íslandsmeistari. Hún var kjölfestan í varnarleiknum og lék stórt hlutverk sem línumaður í sóknarleiknum.
Theodór var einnig valinn besti sóknarmaður deildarinnar og Steinunn hreppti hnossið í kjöri á besta varnarmanni Olís-deildar kvenna. Hún hlaut einnig Sigríðarbikarinn sem kenndur er við Sigríði Sigurðardóttur, fyrrverandi landsliðsfyrirliða, leikmann Vals og íþróttamann ársins 1964.
Íslands- og bikarmeistarar Vals áttu aðeins einn verðlaunahafa í hófinu í kvöldi, Orra Frey Gíslason. Hann hlaut Valdimarsbikarinn sem afkomendur Valdimars Sveinbjörnsson gáfu fyrir nokkrum árum til minningar um frumkvöðul handknattleiks hér á landi.
Það eru þjálfarar liða í úrvalsdeildinni sem velja mikilvægustu leikmenn úrvalsdeildar kvenna og karla sem hljóta Valdimarsbikarinn í karlaflokki og Sigríðarbikarinn í flokki kvenna.
Besti varnarmaður Olís-deildar karla var valinn Ágúst Birgisson, leikmaður deildarmeistara FH. Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, markadrottning Olís-deildar kvenna, þótti skara fram úr öðrum sóknarkonum deildarinnar.
Framarar hlutu fleiri verðlaun því Guðmundur Helgi Pálsson, þjálfari karlaliðsins, og Stefán Arnarson, sem stýrði kvennaliðinu, voru valdir þjálfarar ársins í Olís-deildinni.
Sveinbjörn Pétursson, Stjörnunni, og Guðrún Ósk Maríasdóttir, Fram, voru kjörin bestu markverðir Olís-deildanna.
Í fyrsta sinn í 10 ár var Anton Gylfi Pálsson ekki annar hluti dómaraparsins sem valið var það besta á leiktíðinni. Að þessu sinni voru Heimir Örn Árnason og Sigurður Hjörtur Þrastarson valdir fremsta dómarapar Íslandsmótsins. Allt frá árinu 2007 hefur Anton Gylfi verið annar hlutinn í dómarapari ársins, fyrstu árin með Hlyni Leifssyni en síðustu þrjú ár ásamt Jónasi Elíassyni.
Háttvísiverðlaun HDSÍ kvenna 2017:
Laufey Ásta Guðmundsdóttir – Grótta
Háttvísiverðlaun HDSÍ karla 2017:
Andri Þór Helgason - Fram
Unglingabikar HSÍ 2017: HK
Markahæsti leikmaður 1.deildar kvenna 2017:
Alina Molkova - Víkingur með 238 mörk
Markahæsti leikmaður 1.deildar karla 2017:
Jón Kristinn Björgvinsson – ÍR með 158 mörk
Markahæsti leikmaður Olís-deildar kvenna 2017:
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir – Selfoss með 174 mörk
Markahæsti leikmaður Olís-deildar karla 2017:
Theodór Sigurbjörnsson - ÍBV með 233 mörk
Besti varnarmaður 1. deildar kvenna 2017:
Berglind Þorsteinsdóttir - HK
Besti varnarmaður 1. deildar karla 2017:
Sveinn Þorgeirsson - Fjölnir
Besti varnarmaður Olís-deildar kvenna 2017:
Steinunn Björnsdóttir - Fram
Besti varnarmaður Olís-deildar karla 2017:
Ágúst Birgisson - FH
Besti sóknarmaður 1. deildar kvenna 2017:
Alina Molkova - Víkingur
Besti sóknarmaður 1. deildar karla 2017:
Jón Kristinn Björgvinsson - ÍR
Besti sóknarmaður Olís-deildar kvenna 2017:
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir - Selfoss
Besti sóknarmaður Olís-deildar karla 2017:
Theodór Sigurbjörnsson - ÍBV
Besti markmaður 1. deildar kvenna 2017:
Margrét Ýr Björnsdóttir - HK
Besti markmaður 1. deildar karla 2017:
Einar Baldvin Baldvinsson - Víkingur
Besti markmaður Olís-deildar kvenna 2017:
Guðrún Ósk Maríasdóttir - Fram
Besti markmaður Olís-deildar karla 2017:
Sveinbjörn Pétursson - Stjarnan
Besta dómaraparið 2017:
Heimir Örn Árnason – Sigurður Hjörtur Þrastarson
Sigríðarbikarinn 2017:
Steinunn Björnsdóttir - Fram
Valdimarsbikarinn 2017:
Orri Freyr Gíslason - Valur
Besti þjálfari í 1. deild kvenna 2017:
Jónatan Þór Magnússon – KA/Þór
Besti þjálfari í 1. deild karla 2017:
Arnar Gunnarsson – Fjölnir
Besti þjálfari Olís-deildar kvenna 2017:
Stefán Arnarson - Fram
Besti þjálfari Olís-deildar karla 2017:
Guðmundur Helgi Pálsson - Fram
Efnilegast leikmaður 1. deildar kvenna 2017:
Andrea Jacobsen - Fjölnir
Efnilegast leikmaður 1. deildar karla 2017:
Sveinn Jóhannsson - Fjölnir
Efnilegasti leikmaður Olís-deildar kvenna 2017:
Sandra Erlingsdóttir - ÍBV
Efnilegast leikmaður Olís-deildar karla 2017:
Viktor Gísli Hallgrímsson - Fram
Leikmaður ársins í 1. deild kvenna 2017:
Martha Hermannsdóttir – KA/Þór
Leikmaður ársins í 1. deild karla 2017:
Jón Kristinn Björgvinsson - ÍR
Besti leikmaður Olís-deildar kvenna 2017:
Steinunn Björnsdóttir - Fram
Besti leikmaður Olís-deildar karla 2017:
Theodór Sigurbjörnsson - ÍBV