Örn Östenberg í Selfoss

Örn Östenberg og Magnús Matthíasson, formaður handknattleiksdeildar Selfoss.
Örn Östenberg og Magnús Matthíasson, formaður handknattleiksdeildar Selfoss. Ljósmynd/Selfoss

Örn Östenberg hefur skrifað undir tveggja ára samning við handknattleiksdeild Selfoss. Örn sem er vinstri skytta, er sonur Önnu Östenberg og Vésteins Hafsteinssonar, hann er fæddur í Helsingborg og hóf handboltaferilinn og spilaði lengi hjá Vaxjö HF. Hann hefur verið leikmaður IFK Kristianstad frá árinu 2015.

Örn hefur spilað fyrir yngri landslið Íslands og er í U-19 landsliði Íslands sem tekur þátt í HM í Georgíu í sumar. Aðspurður sagðist Örn hafa valið Selfoss vegna þess að hann þekkir bæinn mjög vel, pabbi hans er Selfyssingur auk þess sem hann hefur hrifist af starfinu sem og þjálfuninni sem í boði er hjá handknattleiksdeild Selfoss.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert