Það verða Spánverjar og Danir sem leika til úrslita á heimsmeistaramótinu í handknattleik karla 21 árs og yngri. Danir höfðu betur gegn Frökkum, 37:34 og Spánverjar lögðu Þjóðverja, 26:21 í undanúrslitunum í dag.
Frakkar komust í 14:10 gegn Dönum í leik liðanna í dag en Danir náðu að jafna í 23:23. Þegar skammt var eftir var staðan 34:34 en Danir voru sterkari á lokakaflanum og tryggðu sér sigurinn.
Þjóðverjar voru yfir fyrri hluta leiksins gegn Spánverjum en þeir spænsku voru mun sterkari og tryggðu sér öruggan sigur í seinni hálfleik.