Íslenska U17 ára landslið kvenna í handknattleik mátti þola 24:19 tap gegn Búlgaríu í öðrum leik sínum á Evrópumótinu sem fram fer í Makedóníu. Ísland hefur þar með tapað báðum leikjum sínum á mótinu til þessa.
Lena Margrét Valdimarsdóttir var markahæst í íslenska liðinu með átta mörk og Harpa María Friðgeirsdóttir skoraði þrjú. Ísland mætir Slóveníu í þriðja leik sínum á föstudaginn kemur.