Íslenska karlalandsliðið skipað leikmönnum 19 ára og yngri hafði betur gegn Síle, 27:22 í öðrum leik sínum á heimsmeistaramótinu í Georgíu. Staðan í hálfleik var 12:9 og var íslenska liðið mun sterkara í síðari hálfleik.
Teitur Örn Einarsson skoraði tíu mörk, annan leikinn í röð og Orri Freyr Þorkelsson skoraði sex mörk. Andri Scheving varði 18 skot í marki Íslands og var valinn besti maður leiksins.
Mörk Íslands:
Teitur Örn Einarsson 10, Orri Freyr Þorkelsson 6, Sveinn José Rivera 3, Örn Östenberg 2, Sveinn Andri Sveinsson 2, Birgir Már Birgisson 2, Kristófer Dagur Sigurðsson 2.