Handknattleiksdeild ÍBV skrifaði undir samninga við Kristrúnu Hlynsdóttur, Ester Óskarsdóttur og Magnús Stefánsson, sem öll hafa leikið stórt hlutverk í liðum félagsins undanfarin ár. Samningur Kristrúnar er til tveggja ára en Ester og Magnús gerðu eins árs samning.
Í tilkynningu frá ÍBV segir að félagið sé mjög ánægt með að leikmennirnir skuli hafa valið að leika áfram fyrir félagið.