Kvennalið Vals og Fram unnu leiki sína í fyrstu umferð Ragnarsmótsins í handknattleik sem fram fer á Selfossi. Meistaraflokkar karla og kvenna keppa á mótinu, en það er haldið í 27. skipti til minningar um Ragnar Hjálmtýsson.
Fram hafði betur gegn ÍBV, 36:34. Þórey Rósa Stefánsdóttir og Karen Knútsdóttir skoruðu tíu mörk hvor fyrir Fram. Sandra Erlingsdóttir var markahæst í liði ÍBV með 11 mörk og Díana Kristín Sigmarsdóttir skoraði níu.
Valur hafði betur gegn Selfossi, 23:19. Kristín Guðmundsdóttir skoraði sjö mörk fyrir Val og Diana Satkauskaite gerði fimm. Hjá Selfossi voru það Hulda Dís Þrastardóttir og Perla Ruth Albertsdóttir sem skoruðu mest eða fjögur mörk hvor.