Ólafur Gústafsson lék ekki með Stjörnunni, eins og ráð hafði verið fyrir gert, þegar liðið gerði jafntefli, 25:25, við Fram í Olís-deild karla í handknattleik í gærkvöld. Hann hefur samið við Kolding í Danmörku, eins og áður hefur komið fram, og heldur þangað í dag.
Ólafur hefur verið í lykilhlutverki í Stjörnuliðinu og samkvæmt heimildum Morgunblaðsins leita nú Stjörnumenn logandi ljósi að manni til að fylla hans skarð, innanlands sem utan. Þeir hafa til þess nokkurt svigrúm því ekki verður lokað fyrir félagaskipti til íslenskra liða fyrr en 1. nóvember.