Handboltamaðurinn Rúnar Kárason hefur skrifað undir þriggja ára samning við danska A-deildarfélagið Ribe-Esbjerg. Félagsskiptin ganga í gegn eftir tímabilið, en Rúnar klárar leiktíðina með Hannover-Burgdorf í Þýskalandi.
Rúnar hefur verið ófeiminn að láta óánægju yfir spiltíma sínum hjá Hannover í ljós og koma félagsskiptin lítið á óvart. Hann hefur verið hjá félaginu síðan 2013 en hann hefur einnig leikið með Rhein-Neckar Löwen, Großwallstadt, Bergischer og Füchse Berlin síðan hann gerðist atvinnumaður árið 2009.