Handboltamaðurinn Björgvin Hólmgeirsson, sem leikur með ÍR í Olísdeild karla í handbolta, fór í aðgerð í gærkvöldi vegna brjóskloss sem hefur hrjáð hann undanfarið. Björgvin verður líklega frá keppni til áramóta hið minnsta.
Þetta er mikil blóðtaka fyrir ÍR sem situr í sjöunda sæti deildarinnar með sex stig eftir sex umferðir. Björgvin hafði leikið fyrstu tvo leiki ÍR-inga í deildinni og skorað í þeim leikjum 10 mörk.
"What doesn't kill you makes you stronger" sagði einhver.... Brjósklos aðgerð nr.2 búin og núna tekur við recovery 😔 #aframgakk pic.twitter.com/kkSwLwBX95
— BjörgvinHólmgeirsson (@Bjorgvin33) October 19, 2017