Línumaðurinn Vignir Svavarsson skoraði þrjú mörk þegar lið hans Holstebro sigraði Skanderborg 23:22 í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag.
Holstebro var fimm mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 13:8. Gestirnir frá Skanderborg sóttu í sig veðrið í seinni hálfleik og fengu tækifæri til að jafna í lokin en varnarmenn Holstebro vörðu síðasta skot Skanderborg í leiknum.
Holstebro er í sjöunda sæti deildarinnar með níu stig.