Aron Pálmarsson opnaði markareikning sinn í spænsku 1. deildinni í handbolta í gær þegar hann lék sinn fyrsta deildarleik með Barcelona.
Aron skoraði 3 mörk í níu marka sigri gegn Encuentro Bidasoa og var þetta 131. deildarsigur Börsunga í röð. Á meðfylgjandi myndskeiði má sjá mörkin þrjú sem Aron skoraði í leiknum.
🎥 Las primeras veces nunca se olvidan así que @aronpalm recordará su debut en Liga en el mítico Artaleku😏. ¡El islandés del @FCBhandbol soltó brazo en su carta de presentación en ASOBAL!💪🔥 pic.twitter.com/KBpzi6gewA
— ASOBAL (@balonmanoASOBAL) November 16, 2017