KA og Selfoss mætast í Coca Cola-bikar karla í handbolta í kvöld. Patrekur Jóhannesson tók við þjálfun Selfyssinga af Stefáni Árnasyni sem nú þjálfar KA og verður það því athyglisverð rimma.
Þeir félagar hafa þekkst ansi lengi, því Árni Stefánsson, pabbi Stefáns, var aðstoðarþjálfari KA er Patrekur var leikmaður liðsins. Stefán var með pabba sínum í för á flestum leikjum og æfingum KA og í dag birti Davíð Már Kristinsson mynd á Twitter sem sýnir þá saman fyrir 20 árum.
Rúmum 20 árum síðar mætast Stefán og Patrekur sem þjálfarar liða sinna í KA heimilinu í kvöld #SelfossKA #Handbolti #Olisdeildin pic.twitter.com/Jvu6wH0G5G
— Davíð Már (@DavidMarKrist) December 14, 2017