Íslandsmeistarar Fram gerðu góða ferð til Vestmannaeyja í dag þegar liðin áttust við í Olís-deild kvenna í handknattleik. Fram fagnaði fimm marka sigri, 30:25.
Framarar höfðu tögl og hagldir allan tímann. Fram var yfir 18:13 í hálfleik og hélt fengnum hlut í síðari hálfleik. Elísabet Gunnardóttir skoraði 8 mörk fyrir Fram og Ragnheiður Júlíusdóttir 7 en hjá ÍBV var Karólína Bæhrenz atkvæðamest með 6 mörk.
Liðin höfðu sætaskipti á stigatöflunni. Fram er komið með 16 stig í 3. sæti deildarinnar en ÍBV er í 4. sætinu með 15 stig.
ÍBV | 25:30 | Fram | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
60. mín. Greta Kavaliauskaite (ÍBV) á skot í stöng | ||||
Augnablik — sæki gögn... |