Frakkar slógu Spánverja út

Zinedine Zidane skoraði síðasta mark Frakka. Hann fékk jafnframt gult …
Zinedine Zidane skoraði síðasta mark Frakka. Hann fékk jafnframt gult spjald í leiknum og þarf að passa sig gegn Brasilíu. Reuters

Frakkland og Brasilía munu mætast í 8-liða úrslitum á HM í Þýskalandi en Frakkar lögðu Spánverja að velli í kvöld 3:1. Spánverjar komust í 1:0 með marki frá David Villa úr vítaspyrnu á 27. mínútu en Franck Ribery jafnaði á 41. mínútu. Patrick Vieira skallaði í netið hjá Spánverjum á 83. mínútu og Zinedine Zidane fyrirliði Frakka rak síðasta naglann í kistu Spánverja í uppbótartíma.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert