Didier Drogba missir af HM

Didier Drogba heldur um olnbogann og Sven Göran Eriksson fylgist …
Didier Drogba heldur um olnbogann og Sven Göran Eriksson fylgist með. Reuters

Samkvæmt fregnum franskra fjölmiðla brotnaði Didier Drogba á olnboga í vináttulandsleik Fílabeinsstrandarinnar við Japan í dag og missir þar með af því að spila með þjóð sinni á HM í Suður-Afríku.

Bæði L'Equipe og Canal+ fullyrða að möguleikar Drogba á að taka þátt í keppninni séu algjörlega úr sögunni eftir þessi meiðsli. Sven göran Eriksson, þjálfari Fílabeinsstrandarinnar, hafði áður staðfest meiðslin og sagt að hann hefði miklar áhyggjur af því hvort fyrirliðinn sinn yrði með á HM.

Þetta er gífurlegt áfall fyrir lið Fílabeinsstrandarinnar sem er í sannkölluðum dauðariðli á HM með Portúgal og Brasilíu, ásamt Norður-Kóreu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert