Englendingar hafa áhyggjur af landsliðsfyrirliða sínum, Steven Gerrard, sem glímir við óþægindi í nára á lokasprettinum fyrir heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu.
Gerrard lék einungis fyrri hálfleikinn í vináttulandsleiknum við Hondúras á laugardagskvöldið og var aðeins með í hluta af æfingu enska liðsins í Ríó í gær. Englendingar mæta Ítölum í Manaus á laugardagskvöldið kemur, en samkvæmt fréttamanni BBC er talið öruggt að Gerrard verði klár í slaginn þar. Hann verður undir stöðugu eftirliti læknaliðs Englendinga fram að leiknum.