Beckham hrósar Messi í hástert

David Beckham er hrifinn af því sem hann hefur séð …
David Beckham er hrifinn af því sem hann hefur séð á heimsmeistaramótinu. AFP

Enska goðsögnin David Beckham segist hlakka til að sjá Lionel Messi í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í knattspyrnu á morgun og segist mikill aðdáandi Argentínumannsins.

„Hann er stórkostlegur,“ sagði Beckham í viðtali. „Hann gefur fólkinu svo mikla ánægju með spilamennsku sinni og það sem gerir hann svo sérstakan er að hann spilar einnig svo vel fyrir liðið. Hann er með mikla einstaklingsbundna hæfileika en hann er allur fyrir liðið. Þegar aðrir skora er hann fyrstur til að fagna þeim,“ sagði Beckham.

Englendingurinn var spurður út í úrslitaleikinn og hvernig hann teldi úrslitin verða, en hann var tregur til svars en sagði á endanum að hann spáði leiknum 3:1 fyrir Argentínu. Hann segir mótið hafa verið frábært áhorfs.

„Staðreyndin að sjá lið eins og Kostaríku og Kólumbíu spila eins og þeir gerðu ásamt þeim ungu leikmönnum sem stukku upp á stjörnuhimininn er frábært að sjá.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert