„Of uppgefinn til að átta mig á þessu“

Þjóðverjinn Andre Schürrle gat ekki hamið tilfinningarnar eftir að Þjóðverjar tryggðu sér heimsmeistaratitilinn í knattspyrnu með 1:0-sigri á Argentínu í kvöld.

Þetta er besta stund lífs míns. Ég gat ekki annað en grátið því stundin var svo magnþrungin. Svo gat ég ekki hætt. Það var alltaf draumur að verða heimsmeistari og við getum ekki beðið eftir að fagna með stuðningsmönnum okkar í Berlín á morgun," sagði Schürrle, enn klökkur.

Mats Hummels tók í svipaðan streng.

„Ég er enn fastur í einhverjum öðrum heimi og er líkamlega of uppgefinn til að átta mig á hlutunum. En það mun takast á næstu dögum,“ sagði Hummels.

Andre Schürrle og Mats Hummels með styttuna eftirsóttu.
Andre Schürrle og Mats Hummels með styttuna eftirsóttu. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert