Heiner Brand fyrrum landsliðsþjálfari Þýskalands í handknattleik hefur hrifist af leik Þjóðverja undir stjórn Dags Sigurðssonar á heimsmeistaramótinu í Katar.
„Liðið hefur spilað virkilega vel. Liðsheildin hefur verið frábær og það er allt mögulegt, jafnvel að vinni heimsmeistaratitilinn,“ segir Brand í viðtali við þýska blaðið De Welt.
Brand stýrði þýska landsliðinu frá 1997 til 2011 og undir hans stjórn urðu Þjóðverjar Evrópumeistarar árið 2004 og heimsmeistarar á heimavelli árið 2007.
Þjóðverjar verða í eldlínunni í átta liða úrslitunum á HM en þeir etja kappi við gestgjafa Katar og hefst leikurinn klukkan 15.30.