Guðmundur Guðmundsson og Dagur Sigurðsson verða báðir í eldlínunni með lið sín á heimsmeistaramótinu í handknattleik í Katar í dag.
Átta liða úrslitin á mótinu fara fram í dag. Danir, undir stjórn Guðmundar Guðmundssonar, eiga í höggi við heimsmeistara Spánverja, og lærisveinar Dags Sigurðsson glíma við gestgjafanna í Katar.
Leikirnir í undanúrslitunum í dag eru:
15.30 Katar - Þýskaland
15.30 Króatía - Pólland
18.00 Danmörk - Spánn
18.00 Frakkland - Slóvenía