Það er harður slagur um markakóngstitilinn á heimsmeistaramótinu í handknattleik í Katar.
Slóvenski hornamaðurinn Dragan Gajic er markahæstur eins og hann hefur verið nær allt mótið. Hann hefur skorað 56 mörk, einu meira en einn af „útlendingunum“ í liði Katar, Zarko Markocic.
Markahæstu leikmenn eru:
56 - Dragan Gajic, Slóveníu
55 - Zarko Markovic, Katar
52 - Rodrigo Salinas, Síle
45 - Kirl Lazarov, Makedóníu
43 - Siarhei Rutenka, H-Rússlandi
42 - Robert Weber, Austurríki
Guðjón Valur Sigurðsson er í 16.-19. sæti á markalistanum með 31 mark.