Daninn Mikkel Hansen, besti handknattleiksmaður heims, fékk að líta rauða spjaldið í sigri Danmerkur á Barein, 30:26, á heimsmeistaramótinu í handknattleik nú undir kvöld.
Hansen lét þá skapið hlaupa með sig í gönur eftir að hafa verið tekinn föstum tökum af varnarmönnum Barein. Eftir nokkra umhugsun dómara leiksins var honum sýnt rauða spjaldið.
Atvikið má sjá HÉR.