Birta Júlía Þorbjörnsdóttir stóð í marki Ynjanna í kvöld þegar lið hennar tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í íshokkí í fyrsta skipti. Varði hún mjög vel og átti því stóran þátt í 4:1 sigri liðs síns. Hún var drifin í smá spjall.
Það fór ekkert inn hjá þér í þessum leik.
„Jú reyndar. En þetta mark var bara fáránlegt og ekkert við því að gera.“
Er þetta fyrsti titillinn þinn?
„Já, ég byrjaði að æfa mark í desember í fyrra en byrjaði í íshokkí í október fyrir rúmu ári,“ sagði Birta Júlía og glotti við tönn. Orðin Íslandsmeistari á mettíma.