Björninn vann öruggan 4:1-útisigur á SR í Hertz-deild karla í íshokkíi í kvöld, en leikið var í Skautahöll Reykjavíkur.
Andri Helgason kom Birninum í 1:0 um miðjan 1. leikhluta og reyndist það eina markið í honum. Andri skoraði sitt annað mark í 2. leikhluta og Alexander Medvedev bætti við þriðja markinu. Hilmar Sverrisson skoraði fjórða mark Bjarnarins fimm mínútum fyrir leikslok áður en Miloslav Racansky minnkaði muninn undir lokin.
Björninn hefur unnið þrjá af fyrstu fjórum leikjum sínum á meðan SR hefur tapað öllum sex leikjum sínum.