NBA: Dallas og Toronto eygja enn von

Matt Barnes, leikmaður Golden State treður í leik liðsins gegn …
Matt Barnes, leikmaður Golden State treður í leik liðsins gegn Dallas í nótt. Devin Harris kemur engum vörnum við. Reuters

Dallas Mavericks vann sigur á Golden State Warriors, 118:112, í nótt og Toronto Raptors vann New Jersey Nets, 98:96, og eygja enn von um að komast áfram á næsta stig úrslitakeppni bandarísku NBA körfuboltadeildarinnar. Golden State og New Jersey hafa yfir 3:2 í viðureignunum og þurfa einn sigur til að komast áfram.

Jose Calderon skoraði 25 stig fyrir Toronto en Vince Carter skoraði 30 stig fyrir New Jersey. Liðin mætast að nýju á föstudag í New Jersey.

Dallas hefur ekki verið sannfærandi í viðureigninni við Golden State og undir lok leiksins í nótt hafði síðarnefnda liðið forskot, 112:103. En þá vaknaði Dirk Nowitzki loks til lífsins og skoraði tvær þriggja stiga körfur í röð og liðið skoraði 15 stig gegn engu á lokamínútunum.

Sjötti leikur liðanna verður á fimmtudag í Oakland í Kalíforníu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert