Strákarnir Norðurlandameistarar

Íslenska U16 ára lið karla í körfuknattleik var rétt í þessu að tryggja sér Norðurlandameistaratitilinn með því að leggja Svía 69:67 í úrslitaleik. Arnþór Guðmundsson tryggði sigurinn með því að stela boltanum og skora tvö stig þegar fimm sekúndur voru eftir. Hann gerði 20 stig í leiknum. Daði Berg Grétarsson var með 10, Haukur Óskarsson 9 og Ægir Þór Steinarsson átta og hann var með 7 stoðsendingar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert