Boston Celtics náði að landa Kevin Garnett

Paul Pierce 34, Kevin Garnett 5. og Ray Allen 20 …
Paul Pierce 34, Kevin Garnett 5. og Ray Allen 20 verða aðalmennirnir í liði Boston Celtics næstu árin. Reuters

Einn þekktasti körfuknattleiksmaður síðari ára, framherjinn Kevin Garnett, mun leik með Boston Celtics næstu árin í NBA-deildinni. Garnett hefur alla tíð leikið Minnesota Timberwolves en forráðamenn liðsins telja að það fullreynt að byggja upp meistaralið í kringum Garnett og fengu þeir fimm leikmenn og tvo valrétti í háskólavalinu í staðinn frá Boston Celtics.

Al Jefferson, Ryan Gomes, Gerald Green, Theo Ratliff og Sebastian Telfair fóru frá Boston í leikmannaskiptunum. Boston hefur fengið tvo þekkta leikmenn á þessu sumri í sínar raðir en Ray Allen kom frá Seattle Supersonics fyrr í sumar. Garnet, Allen og Paul Pierce eiga að mynda kjarna liðsins næstu árin en Garnett er 31 árs gamall en hann hefur leikið í 12 ár með Minnesota og á þeim tíma hefur hann skorað 20.5 stig að meðaltali og tekið 11,4 fráköst í 927 leikjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert