KR Reykjavíkurmeistari kvenna

Hildur Sigurðardóttir í leik gegn Grindavík.
Hildur Sigurðardóttir í leik gegn Grindavík. mbl.is/Árni Sæberg

KR-ingar urðu í gærkvöldi Reykjavíkurmeistarar í körfuknattleik kvenna þegar þeir lögðu Val 55:54 í miklum baráttuleik.

Staðan í leikhléi var 30:29 fyrir KR en Valur hafði betur í þriðja leikhluta, 13:11, og hafði því eins stigs forystu þegar síðasti leikhlutinn hófst. Þann hluta vann KR 14:12 og fagnaði sigri.

Hildur Sigurðardóttir var með 19 stig fyrir KR og Helga Einarsdóttir, sem átti mjög góðan leik, gerði 10 stig og tók 13 fráköst.

Hjá Val voru þær Signý Hermannsdóttir og Lovísa Guðmundsdóttir bestar. Signý gerði 18 stig og varði 8 skot og Lovísa gerði 16 stig og tók 14 fráköst.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert