Gera þurfti hlé á oddaleik Snæfells og Vals í undanúrslitum Íslandsmóts kvenna í körfubolta um miðjan fyrsta leikhluta þar sem Sigmundur Már Herbertsson dómari varð að fara meiddur af velli og því tafðist leikurinn í nokkrar mínútur.
Enginn varadómari var á staðnum og því þurfti Rúnar B. Gíslason, eftirlitsmaður leiksins, sem jafnframt er formaður dómaranefndar KKÍ, að skella sér í dómarabúning og dæmir nú leikinn með Davíð Kr. Hreiðarssyni.
Fylgjast má með gangi mála í leiknum hér.