Los Angeles Lakers hefur samið við Jeremy Lin um að leika með félaginu í NBA deildinni í körfubolta á næstu leiktíð. Lin sem sló eftirminnilega í gegn með New York Knicks veturinn 2011-2012 hefur verið síðustu tvö ár í herbúðum Houston Rockets.
Lin skoraði að meðaltali 12,5 stig í leik fyrir Houston á síðustu leiktíð, tók 2,6 fráköst og gaf 4,8 stoðsendingar.