Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfari Njarðvíkur í körfubolta og fyrrverandi landsliðsþjálfari karlalandsliðs Íslands og framkvæmdastjóri KKÍ hefur sent frá sér myndband þar sem hann skorar á Örvar Þór Kristjánsson körfuboltaþjálfara, útvarpsmanninn Þórð Helga Þórðarson (betur þekktur sem Doddi litli) og söngvarann Sverri Bergmann til að mæta í Laugardalshöll á landsleik Íslands og Bosníu í undankeppni EM 2015 á miðvikudag.
Friðrik skorar jafnframt í myndbandinu á þessa þrjá að þekkjast boðið og skora á þrjá aðra til að mæta á leikinn til að fylla Höllina í leiknum.
Ísland er nánast komið inn í lokakeppni EM í körfubolta í fyrsta sinn, en sigur á Bosníu gulltryggir EM sætið og gæti jafnvel orðið til þess að Ísland vinni riðilinn sinn í undankeppninni.
Áskorun Friðriks Inga má sjá hér að neðan.