Þriðja umferð Dominos-deildar karla í körfuknattleik hefst í kvöld en þá fara fram þrír leikir í deildinni.
Það er toppslagur á dagskrá í Frostaskjólinu þar sem Íslandsmeistarar KR taka á móti nýliðum Tindastóls en bæði hafa lið hafa unnið tvo fyrstu leiki sína á leiktíðinni.
Stjarnan og ÍR freista þess að vinna sinn fyrsta sigur í deildinni en Stjarnan etur kappi við Grindavík og ÍR sækir Njarðvík heim.
Leikir kvöldsins:
19.15 KR - Tindastóll
19.15 Stjarnan - Grindavík
19.15 Njarðvík - ÍR