Stephen Curry skoraði 40 stig þegar Golden State Warriors vann sinn sjötta leik í röð í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Golden State heimsótti Miami Heat og urðu lokatölurnar 114:97.
Curry hafði verið gagnrýndur fyrir slaka hittni í síðustu tveimur leikjum liðsins en hitti úr ellefu af átján skotum sínum í nótt, þar af átta af ellefu utan þriggja stiga línunnar.
Klay Thompson bætti við 24 stigum fyrir Kaliforníuliðið en Chris Bosh var stigahæstur hjá Miami með 26 stig.
Úrslit næturinnar:
Washington - Atlanta 102:106
Miami - Golden State 97:114
Milwaukee - Detroit 98:86
New Orleans - Sacramento 89:99
Denver - Chicago 114:109