Elvar Már Friðriksson og Martin Hermannsson, landsliðsmenn í körfuknattleik, voru á ferðinni í nótt með liði sínu LIU Brooklyn í efstu deild bandaríska háskólakörfuboltans. LIU tapaði fyrir Saint Joseph´s eftir framlengdan leik 74:70.
Elvar skoraði 12 stig og gaf 2 stoðsendingar en Martin var með 8 stig og gaf 5 stoðsendingar en báðir voru þeir í byrjunarliðinu.
Tímabilið er nýhafið hjá þeim félögum en LIU hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum.