Martin Hermannsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, var í dag valinn nýliði vikunnar í NEC-riðli bandarísku háskóladeildarinnar eftir frammistöðu sína í tveimur leikjum með LIU Brooklyn.
Eins og fram kom fyrr í dag skoraði Martin 21 stig, átján þeirra í seinni hálfleik, í sigurleik LIU um helgina og hann átti líka góðan leik í síðustu viku þegar hann skoraði 13 stig, tók fjögur fráköst og átti fjórar stoðsendingar í tapleik liðsins.
Martin er þriðji leikmaður LIU sem fær þessa viðurkenningu í vetur en annar hinna er félagi hans í íslenska landsliðinu, Elvar Friðriksson.