Carmen Tyson Thomas lét til sín taka í dag í undanúrslitaleiknum í bikarkeppninni með liði sínu Keflavík líkt og venjulega. Carmen lauk leik með 34 stig, 18 fráköst og 8 stolna bolta.
Óhætt að slá á hana tignina „Maður leiksins“ eftir þessa frammistöðu. Carmen sagði sitt lið hafa unnið vel saman og það hafi skilað þessum stór sigri gegn Snæfell í dag og um leið miðanum í Höllina.