Keflvíkingar fá í kvöld annað tækifæri til að tryggja sér sæti í undanúrslitum Íslandsmóts karla í körfuknattleik þegar liðið fær Hauka í heimsókn til Keflavíkur í fjórða leik liðanna í 8-liða úrslitum.
Leikurinn hefst klukkan 19:15. Keflavík er 2:1 yfir í rimmunni en vinna þarf þrjá leiki til að komast áfram.
Haukar höfnuðu í 3. sæti Dominos-deildarinnar en Keflavík í 6. sæti. Keflavík vann fyrsta leikinn í Hafnarfirði og fylgdi því eftir með sigri í Keflavík í öðrum leiknum. Haukar svöruðu fyrir sig þegar liðin mættust öðru sinni í Hafnarfirði og minnkuðu muninn í 2:1.