Atlanta Hawks hélt áfram þar sem frá var horfið í deildakeppni NBA í körfuknattleik í vetur og vann Brooklyn Nets, 99:92, í fyrsta leiknum í úrslitakeppninni á heimavelli sínum í kvöld.
Atlanta vann Austurdeildina en Brooklyn skreið naumlega inn í áttunda sæti en þó munaði aldrei miklu á liðunum í kvöld. Sextán stig var það mesta en Brooklyn saxaði ávallt aftur á forskotið.
Kyle Korver skoraði 21 stig fyrir Atlanta, Jeff Teague og DeMarre Carroll 17 stig hvor. Hjá Brooklyn voru Joe Johnson og Brook Lopez með 17 stig hvor.