Hildur Sigurðardóttir úr Snæfelli var eitt stórt bros þegar mbl.is hitti hana að máli eftir sigur gegn Keflavík í kvöld, 85:76, á útivelli í öðrum úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitil kvenna í körfuknattleik.
Ærin ástæða var til þar þess sem lið hennar er nú í kjörstöðu að landa Íslandsmeistaratitlinum annað árið í röð en staðan í einvíginu er 2:0.
Hildur sagði að vörn liðsins hefði skilað sínu og að það yrði það sem myndi skila þeim titlinum að lokum.
Sjá viðtalið við hana í meðfylgjandi myndskeiði.